Kjarakönnun VFÍ 2026
Spurt var um laun í febrúar 2026. Með því að skoða laun eftir starfsaldri, lífaldri, fagsviði og starfssviði má nálgast þau markaðslaun sem við eiga fyrir hvern einstakling. Með rafrænu viðmóti geta félagsmenn greint stöðu sína og gert samanburð á mismunandi hópum.
Skýringar
Þegar niðurstöður eru skoðaðar verður að hafa í huga að það sem virðist misræmi í launatölum getur verið vegna þess hve fámennur hópur svarar. Dæmi: Það er fámennur hópur meðal verkfræðinga með stuttan starfsaldur og með meistaragráðu sem er með nokkuð há laun. Þetta sýnir sig m.a. í því að launadreifingin í þessum hópi er mun meiri en meðal þeirra sem eru með 1,1-3 ár. Þessi fámenni hálaunahópur var þó ekki með það há laun, og ekki það fáir, að hægt sé skilgreina þá sem „útlaga” og þar með hreinsa þá úr gagnasafninu.
Athugasemd um launaþróun hjá ríkinu og Reykjavíkurborg. Þegar kjarakönnun VFÍ var framkvæmd í febrúar 2025 höfðu nýir kjarasamningar VFÍ við ríkið og Reykjavíkurborg ekki enn tekið gildi. Því höfðu afturvirkar launahækkanir frá 1. apríl 2024 ekki skilað sér til félagsmanna sem starfa hjá ríkinu og Reykjavíkurborg þegar könnunin var gerð. Jafnframt komu kjarasamningsbundnar launahækkanir til framkvæmda 1. apríl 2025, eftir að könnuninni lauk, og þær endurspeglast því heldur ekki í niðurstöðum kjarakönnunar 2025.
Talan sem birtist í töflu 5 endurspeglar því samanlagðar kjarasamningsbundnar hækkanir vegna tveggja samningstímabila, þ.e. afturvirkar hækkanir frá 2024 og hækkanir sem tóku gildi 1. apríl 2025.
Hækkunin felur því ekki í sér 12,7% launaskrið, heldur er um að ræða kjarasamningsbundnar launahækkanir sem ná yfir tvö ár.
Launaþróun verkfræðinga og tæknifræðinga frá árinu 2000
Skýrslan er frá 2023 og er unnið að uppfærslu út frá nýjustu könnunum.
Mikilvægt að taka þátt
Könnunin og úrvinnsla hennar er unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Með því er þátttakendum tryggð nafnleynd og hlutleysi í úrvinnslu, auk þess sem stofnunin aflar tiltekinna leyfa til gagnaskráningar.
Upplýsingar um laun og önnur starfskjör verkfræðinga og tæknifræðinga eru nauðsynlegar til að unnt sé að gera raunhæfa samninga um kaup og kjör. Kjarakönnun er leið til að afla slíkra upplýsinga og er mikilvægt að sem flest taki þátt.
