Beint í efni

Or­lofs­sjóð­ur

Markmið sjóðsins er að bjóða gistingu og aðra kosti á hagstæðu verði til að auðvelda sjóðfélögum að njóta frítíma síns.

Sumarhús og kjarr í forgrunni.

Orlofssjóður VFÍ notar Frímann orlofskerfið eins og flest stéttarfélög í landinu.

Sjóðurinn leigir út orlofshús og íbúðir, einnig er hægt að kaupa gjafabréf í flug, útilegu- og veiðikortið og ferðaávísun.

Orlofssjóðurinn á sjö orlofshús og tvær íbúðir á Akureyri. Þrjú orlofshúsanna eru í Hraunborgum í Grímsnesi, þrjú í Húsafelli og eitt í Árnesi. Þá hefur sjóðurinn leigt til lengri tíma fjögur orlofshús að Stóruborg í Borgarfirði (Klapparholt). Einnig hefur sjóðurinn tekið á leigu íbúð við Nónhæð í Garðabæ. Framboð á sumrin er meira því sjóðurinn tekur hús og íbúðir á leigu yfir sumartímann. 

Nokkur mikilvæg atriði

Athugið að bókaðar og greiddar orlofsvikur eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Á sumrin eru húsin leigð frá föstudegi til föstudags. Á veturna frá fimmtudegi til fimmtudags.

Leigan er kr. 25.000.- fyrir vikuna. Bústaðurinn Álfasteinssundi 21 í Hraunborgum og nýju bústaðirnir í Húsafelli eru mun stærri en önnur hús og vikan kostar kr. 30.000.- 
Íbúðin við Nónhæð í Garðabæ er í dagsleigu, nema á sumrin, í vetrarfríum og um páskana. Sólarhringurinn kostar kr. 5.000.- og frádráttur 1 punktur á sólarhring.

Gæludýr eru einungis leyfð í Klapparholti - Stóruborg nr. 8 og 10, í Hraunborgum - Álfasteinssundi 19 og í Stórarjóðri 14 í Húsafelli.

Uppsöfnun punkta og frádráttur

Sjóðfélagar safna punktum sem veita réttindi, einn punktur fyrir hvern mánuð sem greitt er í sjóðinn. Vetrarleiga „kostar" þrjá punkta en leiga um sumar, í vetrarfríum og páska 30 - 36 punkta. Punktar eru færðir inn í marsmánuði ár hvert og þá fyrir almanaksárið á undan.

Kerfið heimilar mínusstöðu upp á -12 punkta, sem samsvarar ávinnslu punkta í eitt ár.

Þau sem eru með lægri punktastöðu geta ekki leigt orlofseignir eða keypt gjafabréf.

Fyrir hvert gjafabréf Icelandair eru dregnir frá tveir punktar.

Fyrir Útilegukortið og Veiðikortið eru dregnir frá tveir punktar.

Úrsögn og fyrning punkta

Sjóðfélagi telst segja sig úr Orlofssjóðnum ef umsamin gjöld hætta að berast sjóðnum, þó þannig að hafi sjóðfélagi greitt samfellt í sjóðinn undangengin tvö ár heldur hann réttindum í tvö ár.

Félagsmenn VFÍ sem ekki eru í Orlofssjóðnum geta leigt orlofshús með viku fyrirvara og greiða 50% álag á leiguna.