Beint í efni

Leið­bein­ingar vegna starfs­heita

Menntamálanefnd VFÍ afgreiðir umsóknir um aðild að VFÍ og/eða starfsheitið.

Þau sem lokið hafa viðurkenndu verkfræði- eða tæknifræðinámi geta orðið félagsmenn í VFÍ. Ungfélagaaðild er fyrir þá sem stunda nám í verkfræði eða tæknifræði. Ungfélagar greiða ekki félagsgjald.

Umsókn um félagsaðild og/eða starfsheiti

  • Umsókninni þarf að fylgja staðfest prófskírteini frá viðkomandi skóla ásamt ferilskrá sem lýsir námi og skilgreiningu á einingum. Fram þarf að koma hvaða ár nám hófst og hvenær því lauk.
  • Hægt er að sækja um hér eða koma á skrifstofuna að Engjateigi 9, Reykjavík.
  • Þeir sem útskrifast frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands eða Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík geta heimilað félaginu að sækja námsferilskrána til viðkomandi skóla í stað þess að senda hana inn.
  • Ef einungis er sótt um starfsheiti hjá  þarf að leggja fram frumskjöl þar sem eru upplýsingar um próf og prófgráður. Ráðuneytið leitar umsagnar hjá VFÍ hvort umsækjandi uppfylli skilyrði til að nota starfsheitið verkfræðingur/tæknifræðingur.
  • Æskilegt er að upplýsingar um undanfara verkfræði- eða tæknifræðináms fylgi. Þ.e. stúdentspróf, sveinspróf eða annað sambærilegt próf, hvaða ár prófi var lokið og frá hvaða skóla.

Mynd þarf að fylgja umsókn ef um inntökubeiðni í félagið er að ræða.

Athugið. Umsóknir verða ekki teknar til afgreiðslu fyrr en upplýsingar liggja fyrir sbr. hér að ofan.

VFÍ er stærsta og öflugasta félag tæknimenntaðra á Íslandi.

Reglur um mat á umsóknum