Dagana 6.–7. október 2026 verður ráðstefnan: Nordic Preparedness Summit 2026 haldin í Osló á vegum Association of Nordic Engineers (ANE).
Ráðstefnan fer fram miðvikudaginn 7. október, en boðið verður upp á óformlegan kvöldverð og tengslamyndun kvöldið áður, 6. október.
Yfirskrift ráðstefnunnar er viðbúnaður og seigla samfélaga á tímum aukinnar óvissu. Á dagskrá verður fjallað um hvernig Norðurlönd og Evrópa geta eflt viðnámsþrótt sinn gagnvart sífellt flóknara öryggisumhverfi þar sem netógnir, orkuöryggi og vernd mikilvægra innviða skipta sífellt meira máli. Einnig verður lögð áhersla á mikilvægi verkfræðilegrar þekkingar, hæfni og mannafla við að efla viðbúnað til framtíðar.
Meðal þess sem verður til umfjöllunar er:
- Reynsla Eystrasaltsríkjanna af netöryggi og viðbúnaði undir viðvarandi álagi.
- Lærdómur af reynslu Úkraínu við að verja og endurbyggja orkukerfi landsins.
- Hvernig stafrænir innviðir og forysta hafa áhrif á seiglu samfélaga til lengri tíma.
- Umræður um hlutverk verkfræðinga, hæfni, mannafla og getu samfélaga til að bregðast við áskorunum framtíðarinnar.
Á ráðstefnunni koma saman fulltrúar aðildarfélaga ANE, stjórnvöld, atvinnulíf, fræðasamfélagið og aðrir hagaðilar frá Norðurlöndum og Evrópu.
Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu verða kynntar þegar nær dregur.
Til að fá nánari upplýsingar er velkomið að senda tölvupóst til VFÍ.
Hvað er ANE?
Verkfræðingafélag Íslands varð aðili að ANE í upphafi árs 2018. ANE er samstarfsvettvangur félaga verkfræðinga og tæknifræðinga á Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og öðru af tveimur félögum í Noregi. Hlutverk ANE er að gæta hagsmuna norrænna verkfræðinga og tæknifræðinga bæði innan Norðurlandanna og í alþjóðlegu tilliti. Í dag eru um 500 þúsund félagsmenn í aðildarfélögum ANE.
ANE vinnur að því að auka sýnileika og áhrif verkfræðingastéttarinnar. Í gegnum ANE miðla félögin þekkingu sín á milli og vinna að ákveðnum verkefnum. ANE hefur sett aukinn slagkraft í að hafa áhrif á stefnumótun ESB meðal annars varðandi tæknimenntun, svokallaðar STEM-greinar, og á sviði gervigreindar.
Á vef ANE, www.nordicengineers.org og á LinkedIn eru greinargóðar upplýsingar um starfsemina.


-2000x1333.jpg&w=3840&q=80)