Beint í efni

Ráðn­ing­ar­samn­ingar

Mikilvægt er að vanda gerð ráðingarsamnings og tryggja réttindi.

Mikilvægur þáttur í starfsemi VFÍ er að aðstoða félagsmenn að gera ráðningarsamninga.

Vanda verður gerð ráðningasamnings því hann hefur úrslitaáhrif á réttarstöðu launþegans.

Kjarasamningur tryggir grunn réttindi. Ráðningarsamningur er skriflegt samkomulag milli þín og vinnuveitandans þar sem fram kemur hvaða starfi þú sinnir, hvaða laun og orlof þú færð, vinnutími og uppsagnarfrestur. Samningurinn tryggir öryggi beggja aðila og því er mikilvægt að lesa hann vel áður en þú skrifar undir.

Félagsmenn VFÍ fá ókeypis lögfræðiaðstoð í ágreiningsmálum og aðstoð við gerð ráðningarsamninga.

Kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins (SA) er viðmiðunarsamningur á almennum vinnumarkaði. Sérstakir kjarasamningar eru gerðir fyrir starfsfólk verkfræðistofa við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) við Ríkið, sveitarfélögin og orkufyrirtækin.

Sniðmát og leiðbeiningar fyrir almennan markað (SA)

Hvaða þjónustu þarftu? Við erum hér fyrir þig.

Ókeypis aðstoð við gerð ráðingarsamnings.

Fáðu áreiðanlegur upplýsingar um laun, réttindi og skyldur á vinnumarkaði.

Njóttu ókeypis lögfræðiaðstoðar vegna kjaramála og ágreinings tengdum þeim.

Við aðstoðum og stöndum með þér í erfiðum aðstæðum á vinnumarkaði.