Beint í efni

Orku- og veitu­fyr­ir­tæki

VFÍ gerir kjarasamninga við orku- og veitufyrirtækin sem eru hálfopinber fyrirtæki.

Hugtakið hálfopinbert fyrirtæki er notað yfir fyrirtæki eru hvorki opinberar stofnanir né hefðbundin einkafyrirtæki. Þau bera oft samfélagslega ábyrgð en þurfa líka að skila rekstrarlegum árangri.

Um samninga við einstök fyrirtæki

  • Rarik: Kjarasamningur við SA undirritaður í október 2024, gildir til febrúar 2028.
  • Orkuveita Reykjavíkur: Móðurfélag Veitna, ON, Ljósleiðarans og Carbfix. Kjarasamningur gildir frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028.
  • Landsvirkun og Landsnet: Félag tæknimanna hjá fyrirtækjunum (FTL) er formlegur samningsaðili en nýtur þjónustu VFÍ. Félagsmenn eru jafnframt í VFÍ og skila inn aðildarumsókn.
    Hjá Landsvirkjun er ýmist greitt í sjóði samkvæmt kjarasamningi við ríkið eða SA en Landsnet fer eftir kjarasamningi við SA og var jafnframt gert miðlægt samkomulag um kjör háskólamenntaðra hjá fyrirtækinu.

Eldri kjarasamningar

Iðulega eru gerðir viðaukar og bókanir við kjarasamninga og heildarsamningur því ekki uppfærður sem eitt skjal eftir hverja samningalotu.
Til að sjá réttindi og skyldur í heild þarf því í sumum tilvikum að skoða eldri samninga.

Eldri samningar Rarik
Samkomulag 2019-2022
Kjarasamningur 2015-2019

Eldri samningar OR
Kjarasamningur 2019-2022
Kjarasamningur 2015-2019
Kjarasamningur 2014
Kjarasamningur 2008 (heildarsamningur)

Launaviðtöl eru mikilvæg

Í launaviðtali er ekki einungis verið að semja um laun heldur einnig um vinnuframlag og mikilvægi starfsmannsins og horft til þeirra þátta er snúa að starfsumgjörð viðkomandi.  

VFÍ heldur reglulega námskeið í launaviðtölum.

Óhefðbundin stéttarfélög – sem aðeins bjóða sjúkratryggingar, grafa undan sjálfstæðri hagsmunabaráttu og samtakamætti launafólks.