Aðalfundur Norðurlandsdeildar Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 20. mars kl. 18:00 í golfskálanum Jaðri á Akureyri.
Aðalfundur hefst kl. 18:00, hefðbundin aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar og stjórnarkjör. Áhugasamt félagsfólk er beðið að bjóða sig fram í stjórn/varastjórn.
Klukkan 20:00 hefst veisla með mat frá Jaðar Bistró, makar eru velkomnir í mat. Gestir mæti í hús á bilinu 19:30-20:00.
Matur er í boði félagsins.
Veislustjórn verður í höndum Stebba Jak.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 17. mars til Víðis Bjarkasonar vidir@raftakn.is og tilgreinið hvort maki komi með.
Með kærri kveðju stjórn NVFÍ.



