Beint í efni

Áhrif skipulags byggða á líðan íbúa

Páll Jakob Líndal verður gestur á fundi Öldungadeildar VFÍ.

Reykjavík loftmynd sést út á sundin.

Á fundi Öldungadeildar VFÍ miðvikudaginn 15. apríl mun Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur fjalla um hvernig skipulag byggða hefur áhrif á líðan okkar. 

Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:30 með kaffi og bakkelsi og fyrirlestur byrjar kl. 16:00.

Páll hefur vakið athygli fyrir gagnrýna en uppbyggilega umræðu um skipulagsmál og þátttöku almennings. Hann bendir á að hér á landi hafi íbúar oft lítið um þróun eigin hverfa að segja og að samráð sé að einhverju leyti sýndarmennska.

Þá telur hann að of mikil og einsleit þétting byggðar, á kostnað grænna svæða, geti haft neikvæð áhrif á heilsu og líðan borgarbúa. Samhliða þessu nefnir hann þó jákvæð dæmi um þróun borgarinnar, svo sem aukna áherslu á göngu- og hjólastíga og endurbætur á svæðum eins og Fossvogsdal, Hljómskálagarði og Klambratúni.

Allir félagsmenn VFÍ og makar eru velkomnir á fundi Öldungadeildar VFÍ.