Beint í efni

Samlokufundur: Verkefnastjórnun - lykilhæfni framtíðarinnar

Þróun verkefnastjórnunar - áskoranir og tækifæri.

Aðkoma að Snæfellsstofu.
Lógó Advanced MPM námsins

Á Samlokufundi þriðjudaginn 26. maí munu Helgi Þór Ingason og Haukur Ingi Jónasson, forstöðumenn Advanced MPM námsins við Háskólann í Reykjavík, ásamt Sigurði Ragnarssyni forstjóra ÍAV, fjalla um þróun verkefnastjórnunar sem faggreinar og þær áskoranir og tækifæri sem framtíðin ber í skauti sér.

Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13. Streymt verður frá fundinum og verður hlekkur settur hér inn þegar nær dregur.

Megnið af störfum verkfræðinga og tæknifræðinga snýst í raun um verkefni — hvort sem um er að ræða hönnun, þróun, innleiðingu, umbætur eða rekstur. Verkfræðistofur og tæknifyrirtæki eru jafnframt að stórum hluta verkefnadrifnar skipulagsheildir þar sem fagleg verkefnastjórnun getur skipt sköpum um árangur.
Verkefnastjórnun hefur því þróast í lykilhæfni sem nýtist ekki aðeins stjórnendum heldur öllum sem starfa í tæknigeiranum.

Advanced MPM námið við Háskólann í Reykjavík

Námið er sérstaklega hannað sem sveigjanlegt nám með vinnu fyrir fólk í ábyrgðarstörfum og hægt er að stunda það samhliða starfi. Kennslan fer að mestu fram á netinu og lögð er áhersla á hagnýta nálgun, raunhæf verkefni og öflugt tengslanet þátttakenda.

Í náminu er meðal annars fjallað um leiðtogahæfni, samskipti, lausn flókinna verkefna, hefðbundna og kvika verkefnastjórnun, fjármál verkefna, samningastjórnun og notkun gervigreindar í faginu. Námið veitir þátttakendum hagnýt verkfæri og nýja sýn sem nýtist strax í starfi og stjórnunarhlutverkum.

Ljósmynd: Efla - Snæfellsstofa.