Beint í efni

Að­al­fund­ur og árs­skýrsla

Traustur fjárhagur og óbreytt, fast félagsgjald síðan 2019.

Verkfræðingahús fánar og krani í baksýn.

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands 2026 var haldinn þriðjudaginn 12. maí. Á fundinum voru hefðbundin aðalfundarstörf, farið yfir skýrslu stjórnar og reikningsskil. Jafnframt var tilkynnt um kjör í stjórnir og eru upplýsingar hér neðar. Tillaga stjórnar um að stofna Kjaradeilusjóð VFÍ var samþykkt. Aðalfundargerðin verður birt á vef VFÍ þegar hún hefur verið samþykkt af stjórn.

Traustur fjárhagur - félagsgjald ekki hækkað síðan 2019

Fjárhagsleg staða VFÍ og sjóða í vörslu þess mjög traust. Samþykkt var tillaga um óbreytt félagsgjald, sem hefur verið hið sama frá árinu 2019. (3.750.- kr. á mánuði).

Félagsgjöld í VFÍ eru lág miðað við það sem gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði. Félagsgjaldið er föst upphæð, 3.750.- krónur á mánuði en ekki prósenta af heildarlaunum eins og er meginreglan á íslenskum vinnumarkaði.

Ársskýrsla VFÍ 2025-2026.

Niðurstaða stjórnarkjörs

Kosningar til stjórna Verkfræðingafélags Íslands 2026.
Rafræn kosning vegna aðalstjórnar fór fram dagana 5. - 8. maí. Kosið var um einn meðstjórnanda og einn varameðstjórnanda til tveggja ára. Í framboði voru Erlendur Örn Fjeldsted og Arnar H. Hannesson. Erlendur fékk flest atkvæði og er meðstjórnandi og Arnar tekur sæti sem varameðstjórnandi.

Aðalstjórn VFÍ er þannig skipuð:
Helgi Gunnarsson, formaður.
Bjarki Ómarsson, formaður Kjaradeildar VFÍ.
Sveinn I. Ólafsson, formaður Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi.
Erlendur Örn Fjeldsted, meðstjórnandi.
Gunnar Sigvaldason, meðstjórnandi.
Arnar H. Halldórsson, varameðstjórnandi.
Birkir Karl Sigurðsson, varameðstjórnandi.Í.

Kjaradeild VFÍ.
Bjarki Ómarsson, formaður.
Ásdís Sigurðardóttir, meðstjórnandi.
Eyþór Helgi Úlfarsson, meðstjórnandi.
Una Guðrún Gautadóttir, meðstjórnandi.
Kristjana Ósk Birgisdóttir, varameðstjórnandi.
Ásbjörn Ólafsson, varameðstjórnandi.

Deild sjálfstætt starfandi og stjórnenda í VFÍ.
Sveinn I. Ólafsson, formaður.
Stefán Veturliðason, meðstjórnandi.
Bergþór Þormóðsson, meðstjórnandi.
Jón Guðmundsson, varameðstjórnandi.

Varameðstjórnendur taka fullan þátt í störfum stjórna og eru boðaðir á alla fundi.

Sjálfkjörið var í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ og stjórn Kjaradeildar VFÍ.