
Steindór Guðmundsson hljóðverkfræðingur hefur verið útnefndur heiðursfélagi Íslenska hljóðvistarfélagsins, ÍSHLJÓÐ. Viðurkenningin er veitt fyrir áratuga framlag hans til hljóðvistar á Íslandi og starfa í þágu félagsins.
Steindór var meðal stofnenda ÍSHLJÓÐS árið 2006 og fyrsti formaður félagsins, á árunum 2006–2013.
Steindór lauk prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1976 og doktorsprófi í byggingarhljóðfræði frá Tækniháskólanum í Lundi árið 1984. Hann hefur verið leiðandi á sínu sviði hér á landi og komið að hönnun eða eftirliti með nokkrum af helstu menningarhúsum landsins þar sem sérstök áhersla er lögð á hljómburð. Þar má nefna Borgarleikhúsið, endurbætur á Þjóðleikhúsinu, Salinn í Kópavogi, Hof á Akureyri og Hörpu, þar sem hann var ráðgjafi verkkaupa.
Í störfum sínum hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins samdi Steindór fjölda tækniblaða um hljóðfræði bygginga og vann að uppbyggingu Hljóðvers RB á Keldnaholti. Þar eru fjögur mælirými sem bjóða upp á ýmsar hljóðtæknilegar mælingar. Steindór vann um áratugaskeið á Verkís verkfræðistofu, áður Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen.
Steindór hefur jafnframt verið fulltrúi Íslands í norrænu og evrópsku samstarfi um hljóðvist. Hann tók virkan þátt í að móta tillögu að norrænum staðli um hljóðvist í íbúðarhúsum, sem lagði grunn að íslenska staðlinum ÍST 45. Staðallinn var síðar útvíkkaður til að ná einnig yfir atvinnuhúsnæði. Þá hefur hann tekið þátt í evrópsku samstarfi innan COST um samræmingu viðmiða um hljóðvist í íbúðarhúsum.
Með rannsóknum, ráðgjöf, staðlagerð og miðlun þekkingar hefur Steindór lagt mikilvægan grunn að bættri hljóðvist í íslenskum byggingum. Útnefningin er þakklætisvottur fyrir það framlag og störf hans við að byggja upp faglegan vettvang á sviði hljóðvistar.
Mynd 1) Steindór ásamt Kristínu Ómarsdóttur, formanni ÍSHLJÓÐS.
Mynd 2) Stjórn ÍSHLJÓÐS ásamt nýjum heiðursfélaga. F.v. Ólafur Hafstein Pjetursson, Arnheiður Bjarnadóttir, Steindór Guðmundsson, Kristín Ómarsdóttir og Guðrún Jónsdóttir.



