Næsta Rýniferð Verkfræðingafélags Íslands verður farin til Kína dagana 9.–25. október 2027. Ferðin er sú 27. í röðinni. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að undirbúningi ferðarinnar og er stefnt að því að heimsækja borgirnar Peking, Xi'an, Chengdu og Shanghai.
Líkt og í fyrri Rýniferðum er gert ráð fyrir heimsóknum í fyrirtæki og stofnanir auk þess sem sérstök dagskrá verður skipulögð fyrir ferðafélaga félagsmanna VFÍ.
Gert er ráð fyrir að hámarksfjöldi þátttakenda verði 270 manns. Ferðin er ætluð félagsmönnum VFÍ og mökum þeirra eða öðrum ferðafélögum.
Kynningarfundur 16. nóvember
Kynningarfundur verður haldinn í Verkfræðingahúsi mánudaginn 16. nóvember kl. 17:00. Fundinum verður streymt.
Fulltrúar kínverska sendiráðsins á Íslandi og ferðaskrifstofunnar VIA Travel munu taka þátt í fundinum.
Skráning hefst 8. desember
Stefnt er að því að skráning í ferðina hefjist þriðjudaginn 8. desember 2026 kl. 9:00. Líkt og áður gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
Flogið verður með Air China frá Íslandi til Peking með stuttri viðkomu í Kaupmannahöfn. Gist verður á góðum fjögurra og fimm stjörnu hótelum í þeim borgum sem heimsóttar verða.
Jóhannes Benediktsson, Eva Yngvadóttir og Hreinn Ólafsson hafa umsjón með undirbúningi og skipulagningu ferðarinnar, líkt og mörg undanfarin ár, og verða jafnframt aðalfararstjórar.
RÝNIFERÐIR fyrir tæknifræðinga og verkfræðinga sem hófust árið 1998 á vegum Tæknifræðingafélags Íslands hafa frá upphafi notið mikilla vinsælda. Ferðin til Kína verður sem fyrr segir sú 27.


-1-2000x1501.jpg&w=3840&q=80)
