Desemberuppbót er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt kjarasamningi að greiða starfsmönnum sínum í byrjun desember ár hvert, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, þ.m.t. að því er varðar starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári.
Kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins er viðmiðunarsamningur á almennum vinnumarkaði verkfræðinga og tæknifræðinga. Uppbótin greiðist hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall en fullt ársstarf telst a.m.k. 45 unnar vikur fyrir utan orlof.
Desemberuppbót 2026
Almennur markaður - kr. 114.000
Ríki - kr. 114.000
Reykjavíkurborg - kr. 127.000
Sveitarfélögin - kr. 145.000
FRV (verkfræðistofur) - kr. 114.000
Rarik - kr. 132.400
OR - kr. 132.400



