Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn 28. apríl 2026. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 17. Streymt verður frá fundinum.
Þau sem vilja fá hlekk á streymi vinsamlega skrái sig hér.
Lagabreytingar
Á aðalfundinum mun stjórn VFÍ leggja fram tillögu um stofnun Kjaradeilusjóðs VFÍ, ásamt tillögum að tilheyrandi lagabreytingu og reglugerð sjóðsins.
Endurvakinn sjóður SV
Stjórn Verkfræðingafélags Íslands leggur til að stofnaður verði Kjaradeilusjóður Verkfræðingafélags Íslands. Sjóðurinn verði aðeins ætlaður félögum í Kjaradeild VFÍ og aðeins þeir muni koma til með að greiða gjöld til sjóðsins, þegar þau verða innheimt. Stofnframlag sjóðsins kemur alfarið úr vinnudeilusjóði Stéttarfélags verkfræðinga (SV), sem var lagður niður við sameiningu Verkfræðingafélags Íslands og Stéttarfélags verkfræðinga. Sjóðnum hefur verið haldið aðskildum frá öðrum fjármunum félagsins til þessa dags. Tillaga stjórnar felur í sér að það verði ekki greidd gjöld í sjóðinn á árinu 2026 og 2027, heldur renni aðeins vaxtatekjur til sjóðsins. Ákvörðun um sjóðsgjöld er á forræði aðalfundar, sbr. 23. gr. laga VFÍ. Ákvörðun um sjóðsgjöld árið 2028 verði tekin á aðalfundi 2027.
Skjal með skýringum og tillögu stjórnar
Stjórnarkjör
Skila átti framboðum fyrir 15. febrúar. Sjálfkjörið er í stjórnir félagsins. Á aðalfundinum verður tilkynnt hverjir sitja í stjórnum félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn.
Upphafleg frétt um aðalfundinn sem birtist á vef VFÍ 5. febrúar 2026.
Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn 28. apríl 2026. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 17.
Samkvæmt félagslögum á að skila framboðum í stjórnir félagsins og tillögum sem leggja á fyrir aðalfund fyrir 15. febrúar.
Kosið verður í aðalstjórn VFÍ, stjórn Kjaradeildar VFÍ og stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ. Félagsmenn eru hvattir til að gefa kost á sér í gefandi og skemmtileg störf fyrir félagið. Senda á framboð og tillögur til framkvæmdastjóra félagsins Árna B. Björnssonar.
Nánar um stjórnarkjör
Kosning til aðalstjórnar.
Úr stjórn eiga að ganga: Erlendur Örn Fjeldsted meðstjórnandi og Silvá Kjærnested, varameðstjórnandi.
Því er kosið um meðstjórnanda og varameðstjórnanda til tveggja ára.
Kosning til stjórnar Kjaradeildar.
Úr stjórn Kjaradeildar eiga að ganga Ásdís Sigurðardóttir meðstjórnandi og Kristjána Ósk Birgisdóttir, varameðstjórnandi. Því er kosið um meðstjórnanda og varameðstjórnanda til tveggja ára.
Kosning í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi (SVFÍ).
Úr stjórn SVFÍ á að ganga Jón Guðmundsson varameðstjórnandi. Því er kosið um varameðstjórnanda til eins árs.
-2000x1333.jpg&w=3840&q=80)



