Deilu við FRV vísað til ríkissáttasemjara
Enginn árangur eftir 14 mánaða viðræður.
Samninganefnd Verfræðingafélags Íslands (VFÍ) við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) hefur ákveðið að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Undir samninginn heyra félagsmenn VFÍ sem starfa á verkfræðistofum. Eftir 14 mánaða árangurslausar viðræður sér samninganefnd VFÍ enga aðra leið til að ná fram eðlilegum vinnubrögðum og raunverulegum samningsvilja hjá viðsemjandanum.
Samninganefnd VFÍ hefur boðað til Samlokufundar 20. júní næstkomandi kl. 12-13 í Verkfræðingahúsi, Engateigi 9. Á fundinum verður farið yfir samningaferlið og ástæður þess að ekki er talin önnur leið fær í stöðunni en að vísa deilunni til sáttasemjara. Streymt verður frá fundinum og verður hlekkurinn settur hér inn þegar nær dregur.
HLEKKUR Á STREYMI VERÐUR HÉR.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla