Heimildarmyndin Trúin á tæknina – Svipmyndir úr sögu verkfræði og tækniframfara á Íslandi verður sýnd á RÚV í tveimur hlutum, 3. og 17. nóvember. Verkfræðingafélag Íslands lét gera myndina í tilefni af 110 ára afmæli félagsins árið 2022 og var hún frumsýnd 2024.
Myndin fjallar um nútímavæðingu Íslands með áherslu á tæknina sjálfa og verkfræðiþekkinguna sem Íslendingar hafa öðlast. Sagan hefst um aldamótin 1900 þegar fyrstu íslensku verkfræðingarnir snúa heim úr námi og hefja víðtæka uppbyggingu. Þar með hefst eitt mesta umbreytingaskeið Íslandssögunnar, þegar þjóðin fer frá vanefnum til velfarnaðar á nær öllum sviðum mannlífsins.
Fjallað er um helstu vörður í verkfræði og tæknisögu Íslands fram á okkar daga. Viðfangsefnin eru fjölbreytt, meðal annars vegagerð, virkjanir, hafna- og vitagerð, byggingaframkvæmdir, hitaveita, íslenskur iðnaður, háhitaboranir, hugbúnaðargerð og rafeindatækni.
Frá frumsýningu á sjónvarpsskjáinn
Trúin á tæknina var frumsýnd 17. október 2024 fyrir fullu húsi í Bíó Paradís og hlaut afar góðar viðtökur. Mikill metnaður var lagður í gerð hennar og myndefni sótt í fjölmargar áttir, þar á meðal efni sem ekki hafði áður komið fyrir augu almennings.
Frá upphafi var stefnt að því að myndin yrði sýnd í sjónvarpi og nýttist jafnframt við kennslu og í kynningarstarfi VFÍ. Með sýningunum á RÚV gefst nú breiðum hópi áhorfenda tækifæri til að kynnast þessari sögu.
Höfundar og leikstjórar eru Adrian Freyr Rodriguez og Einar Kári Jóhannsson. Ingi Kristján Sigurmarsson sá um klippingu og hreyfigrafík, Guðlaugur Hörðdal samdi tónlistina og gerði hljóðmynd. Sögumaður er Svandís Dóra Einarsdóttir og Egill Viðarsson tók upp og vann innálestur.
VFÍ hvetur félagsfólk og aðra sem hafa áhuga á sögu og þróun íslensks samfélags til að fylgjast með sýningunum á RÚV 3. og 17. nóvember.



