Beint í efni

Fæð­ing­ar­or­lof á ekki að kosta fólk starfið

Óvenju mörg mál vegna uppsagna í fæðingarorlofi.

Hendi á ungabarni
Bjarki Ómarsson og Árni B. Björnsson

Grein eftir Bjarka Ómarsson, formann Kjaradeildar VFÍ og Árna B. Björnsson, framkvæmdastjóra VFÍ birtist í dag á Vísi þar sem fjallað er um uppsagnir starfsfólks í fæðingarorlofi og þá réttarvernd sem lög veita foreldrum.

Í greininni kemur fram að óvenju mörg mál vegna uppsagna í fæðingarorlofi hafi ratað inn á borð Verkfræðingafélags Íslands á síðustu misserum. Þótt aðstæður séu mismunandi milli mála sé þróunin áhyggjuefni.

Bent er á að samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof njóti starfsfólk ríkrar verndar á meðan á fæðingarorlofi stendur og að vinnuveitanda sé óheimilt að segja starfsmanni upp vegna töku eða fyrirhugaðrar töku fæðingarorlofs. Þá þurfi gildar ástæður að liggja að baki uppsögn og vinnuveitandi beri sönnunarbyrðina komi upp ágreiningur.

Í greininni er jafnframt fjallað um mikilvægi fæðingarorlofs sem réttindabótar fyrir fjölskyldur og þann tilgang laganna að auðvelda foreldrum að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku. Höfundar minna á að uppsögn á meðgöngu eða í fæðingarorlofi geti haft veruleg áhrif á fjölskyldur á viðkvæmum tíma.

Verkfræðingafélag Íslands hvetur félagsmenn sem fá uppsögn í fæðingarorlofi eða telja að réttindi sín hafi verið skert vegna töku fæðingarorlofs til að leita ráðgjafar hjá skrifstofu félagsins, senda má póst á kjaramal@verktaekni.is

Lesa má greinina á visir.is