Beint í efni

Fé­lags­menn í Verk­fræð­inga­fé­lag­inu eru 6001

Stærsta og öflugasta félag tæknimenntaðra á Íslandi

Sá merki áfangi varð nú í vikunni að félagakerfi VFÍ sýndi í fyrsta sinn félagafjölda yfir 6000 - nákvæmlega 6001. Því er ekki að neita að við höfum verið dálítið spennt að sjá þessa tölu.

Fjölgun í félaginu er stöðug eða um 5% á ári. Um síðustu áramót voru konur 23% félagsmanna. Hafa verður í huga að hlutfall kvenna er miklu hærra í hópi þeirra yngri.

Svona lítur hópurinn út:
Meistarapróf í verkfræði og þar með starfsheitið verkfræðingur: 3321
BS-próf í verkfræði: 906
BS-próf í tæknifræði og þar með starfsheitið tæknifræðingur: 1493
Ungfélagar: 211
Menntun í raunvísindum, undanþága: 57
Aðrir: 9
Með tveggja ára nám í tæknifræði og aðild skv. undanþágu: 4