Verkfræðingafélag Íslands og Úrval Útsýn hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér ferðafríðindi og aukna þjónustu fyrir félagsmenn VFÍ.
Markmið samstarfsins er að veita félagsmönnum hagstæð ferðakjör, sértilboð og fjölbreytta ferðaþjónustu, bæði vegna einkafría og viðskiptaferða.
Meðal þeirra kjara sem félagsmenn munu geta nýtt sér eru regluleg sértilboð í valdar ferðir, aðgangur að ákveðnum ferðum áður en þær fara í almenna sölu og sérkjör á völdum hótelum og brottförum. Þá munu félagsmenn einnig njóta 10.000 króna afsláttar pr. bókun af pakkaferðum í leiguflugi Úrval Útsýnar, samkvæmt nánari skilmálum. Til að nýta afsláttinn verður að bóka hjá söluveri ÚÚ og tilgreina aðild að VFÍ.
Samstarfið veitir félagsmönnum jafnframt aðgang að þjónustu viðskiptaferðadeildar Úrval Útsýnar. Þar geta félagsmenn fengið aðstoð við skipulagningu og bókun ferða, breytingar á ferðaplönum og aðra ráðgjöf tengda ferðalögum, auk þess sem boðið er upp á sólarhringsþjónustu vegna viðskiptaferða. Til að bóka viðskiptaferð eða fyrir hópa er einfaldast að senda póst á flug@uu.is
Einn þáttur samstarfsins er einnig möguleikinn á sérsniðnum hópferðum fyrir félagsmenn VFÍ. Slíkar ferðir geta verið námsferðir, ráðstefnuferðir eða aðrar ferðir sem tengjast starfi og áhugasviði félagsmanna.
Tilboð og ferðakjör verða kynnt eftir því sem þau verða í boði á vef félagsins, í tölvupóstum og á samfélagsmiðlum VFÍ.
„Við höfum fundið fyrir miklum áhuga félagsmanna á ferðalögum, ekki síst í tengslum við Rýniferðir VFÍ sem hafa notið mikilla vinsælda um langt árabil. Það varð okkur hvatning til að bjóða félagsmönnum enn fleiri tækifæri og betri kjör þegar kemur að ferðalögum. Við væntum mikils af þessu samstarfi við Úrval Útsýn og teljum að það muni skapa félagsmönnum okkar raunverulegan ávinning,“ segir Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands.
Fyrsta ferðin er til Porto í Portúgal
Nú þegar hefur verið skipulögð ferð til Porto í Portúgal dagana 15. – 19. október 2026.
Skráning í ferðina er hjá ÚÚ með því að senda tölvupóst á hopar@uu.is
Taka verður fram nafn, kennitölu, netfang og símanúmer farþega.
Á myndinni eru Jóhannes Benediktsson, Þórunn Reynisdóttir forstjóri ÚÚ, Kristinn Ferdinandsson deildarstjóri hópa- og borgarferða og Árni B. Björnsson framkvæmdastjóri VFÍ.
Jóhannes Benediktsson hefur um árabil skipulagt Rýniferðir VFÍ. Unnið er að undirbúningi Rýniferðar 2027 í samstarfi við ÚÚ sem verður kynnt síðar.




