Það var fjölmenni á Degi verkfræðinnar sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 20. mars.
HS Orka hlaut Teninginn fyrir sjöunda orkuverið í Svartsengi. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars:
Að verkefninu komu ráðgjafar, verktakar og sérfræðingar úr ólíkum greinum verkfræði og tæknifræði. Verkefnið sýnir vel hvernig verkfræðiþekking, skipulag og samvinna geta tryggt áframhaldandi uppbyggingu mikilvægra innviða jafnvel á tímum náttúruhamfara. Samvinna þeirra, ásamt reynslu og útsjónarsemi við úrlausn verkefna við krefjandi aðstæður, var lykilatriði í farsælli framkvæmd.
Helgi Gunnarsson formaður VFÍ afhenti Teninginn. Rafn Magnús Jónsson, yfirverkefnastjóri tæknisviðs hjá HS Orku tók á móti gripnum. Með honum á sviðinu var lykilfólk frá HS Orku, Verkís, Strendingi og HSE Consulting.
Streymt var úr öllum sölum á Degi verkfræðinnar. Streymið er opið eftir að viðburðinum lýkur. Upptökur verða til framtíðar undir fagumræðunni hér á vefnum.




.png&w=3840&q=80)

