Nýtt orkuver HS Orku í Svartsengi hlaut Teninginn, viðurkenningu Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd, þegar hann var afhentur við hátíðlega athöfn á Degi verkfræðinnar í dag.
Framkvæmdir við orkuverið hófust áður en jarðhræringar hófust á Reykjanesskaga og fóru því að stórum hluta fram á tímum mikilla umbrota og endurtekinna eldgosa á svæðinu. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður, tímabundnar lokanir vinnusvæðis og áskoranir vegna gasmengunar tókst að ljúka verkefninu samkvæmt upphaflegri tímaáætlun og undir kostnaðaráætlun með samhentu átaki þeirra fjölmörgu aðila sem komu að verkinu.
Framkvæmdin fól í sér uppsetningu nýrrar 55 MW vélasamstæðu sem jafnframt er stærsti gufuhverfill landsins. Með verkefninu voru tvö eldri orkuver í Svartsengi leyst af hólmi og um leið ráðist í umfangsmiklar endurbætur á búnaði sem tengist bæði raforkuframleiðslu og heitavatnsframleiðslu.
„Í uppbyggingu sjöunda orkuversins í Svartsengi kemur saman verkfræðileg þekking, tæknileg nýsköpun og reynsla í nýtingu jarðvarma sem hefur styrkt mikilvæga orkuinnviði á Reykjanesi við krefjandi aðstæður náttúrunnar,“ segir meðal annars í umsögn dómnefndar.
„Verkefnið er því mikilvægt framlag til sjálfbærrar nýtingar jarðvarma og aukins orkuöryggis á Íslandi. Virkjunin gegnir jafnframt lykilhlutverki í orku- og hitaveituinnviðum á Reykjanesi og hefur þar með mikla þýðingu fyrir samfélag og atvinnulíf á svæðinu.“
Að verkefninu komu ráðgjafar, verktakar og sérfræðingar úr ólíkum greinum verkfræði. „Verkefnið sýnir vel hvernig verkfræðiþekking, skipulag og samvinna geta tryggt áframhaldandi uppbyggingu mikilvægra innviða jafnvel á tímum náttúruhamfara. Samvinna þeirra, ásamt reynslu og útsjónarsemi við úrlausn verkefna við krefjandi aðstæður, var lykilatriði í farsælli framkvæmd,“ segir í umsögn dómnefndar.
Helgi Gunnarsson formaður VFÍ afhenti Teninginn. Rafn Magnús Jónsson, yfirverkefnastjóri tæknisviðs hjá HS Orku tók á móti gripnum. Með honum á sviðinu var lykilfólk frá HS Orku, Verkís, Strendingi og HSE Consulting.

.png&w=3840&q=80)


