Nýjar niðurstöður um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði verða kynntar á morgunverðarfundi þar sem sjónum verður sérstaklega beint að fyrstu tíu árunum eftir námslok. Fundurinn verður fimmtudaginn 27. ágúst kl. 9:00–10:30 í Norræna húsinu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:30.
Erlendur Örn Fjeldsted stjórnarmaður í VFÍ mun taka þátt í pallborðsumræðum.
Verkfræðingafélag Íslands tók þátt í verkefninu ásamt fleiri fag- og stéttarfélögum og félagsmenn VFÍ voru meðal þeirra sem tóku þátt í könnuninni. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands annaðist framkvæmd hennar.
Niðurstöðurnar varpa ljósi á þær áskoranir sem mæta háskólamenntuðu fólki þegar það stígur sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði. Meðal þess sem fjallað verður um er hvort og hvenær fólk nær að eignast húsnæði, staða þess á leigumarkaði og hvaða áhrif húsnæðiskostnaður hefur á fjárhag og lífskjör að námi loknu.
Auk VFÍ tóku þátt Stéttarfélag tölvunarfræðinga, Kjaradeild Byggingafræðingafélags Íslands, aðildarfélög BHM, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélag Íslands, Læknafélag Íslands.
Dagskrá
09:00 – Setning fundar
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM.
Kynning á niðurstöðum könnunar
Inga Rún Sæmundsdóttir og Rebekka Víðisdóttir frá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands: Kynning á niðurstöðum könnunar um háskólamenntaða á húsnæðismarkaði.
Erindi
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður Visku.
Pallborðsumræður
Dagur B. Eggertsson, formaður aðgerðahóps ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál.
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Erlendur Örn Fjeldsted, Verkfræðingafélag Íslands.
10:30 – Fundarslit
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
Fundurinn er öllum opinn og verður honum streymt.
-1-2000x1501.jpg&w=3840&q=80)



