Beint í efni

Kjara­könn­un VFÍ 2026 stendur nú yfir

Mikilvægt tæki í kjarabaráttu. - Þátttaka þín skiptir máli.

Abstrakt af ám og jöklum í fjarska.

Kjarakönnun Verkfræðingafélags Íslands stendur nú yfir. Niðurstöðurnar veita mikilvæga innsýn í laun, starfsskilyrði og þróun á vinnumarkaði verkfræðinga og tæknifræðinga.

Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt. Dregnir verða út þrír heppnir þátttakendur sem munu fá gjafabréf í Kringlunni að upphæð 50.000 kr. hvert.

Könnunin er mikilvæg undirstaða upplýsingagjafar fyrir launaviðtöl og umræðu um launakjör félagsmanna VFÍ.

Félagsvísindastofnun HÍ sér, líkt og áður, um framkvæmd könnunarinnar. Verkfræðingafélagið hefur ekki aðgang að svörum og ekki er unnt að rekja þau til þátttakenda.

Það er auðvelt að svara könnuninni og tekur ekki langan tíma. Það eina sem þarf að hafa við höndina er launaseðill fyrir febrúar 2026  (má nálgast í net-/heimabönkum).

Þau sem ekki hafa fengið könnunina eru beðin að skoða vel ruslpóstinn og einnig flipana í Gmail þar sem auglýsingapóstur lendir gjarnan. - Einnig má hafa samband í síma 535 9300 eða senda tölvupóst á kjaramal@verktaekni.is

VFÍ hvetur félagsmenn til að taka þátt og leggja sitt af mörkum til að styrkja þekkingu á kjörum verkfræðinga og tæknifræðinga.