Kjarasamningur VFÍ við ríkið var samþykktur í rafrænni atkvæðagreiðslu sem fór fram dagana 10.-13. mars.
Félagsmenn VFÍ samþykktu samninginn naumlega.
Já, sögðu 53,5%
Nei, sögðu 46,5%.
Tæplega 70% þeirra sem voru á kjörskrá greiddu atkvæði.
Yfirlýsing frá samninganefnd VFÍ.
Eldri frétt sem birtist 10. mars 2025:
Eftir langar og erfiðar viðræður var þann 3. mars skrifað undir nýjan kjarasamning Verkfræðingafélags Íslands við ríkið.
Kynningarfundur var haldinn og atkvæðagreiðsla hófst 10. mars. Niðurstöðu á að skila til ríkissáttasemjara eigi síðar en 14. mars 16:00.
Atkvæðagreiðsla
Mánudaginn 10. mars kl. 9:00 til fimmtudagsins 13. mars kl. 16:00 fer fram rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Verkfræðingafélags Íslands og Fjármála- og efnahagsrráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritaður var 3. mars síðastliðinn




