
Orlofssjóður Verkfræðingafélags Íslands hefur fest kaup á tveimur sumarhúsum og stórri sumarhúsalóð við Óðinsstíg í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Kaupverð eignanna er samtals 102 milljónir króna. Með kaupunum er stigið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu orlofskosta fyrir félagsmenn VFÍ.
Stærri eignin er við Óðinsstíg 18, glæsilegt og fullbúið bjálkahús á stórri eignarlóð með fallegu útsýni yfir Sogið. Við húsið er rúmgóð verönd og heitur pottur.
Einnig hefur sjóðurinn keypt lítið sumarhús við Óðinsstíg 2. Húsið hefur verið nýtt til skammtímaleigu í gegnum Airbnb og er ætlað sem gisting fyrir tvo. Þar er einnig verönd og heitur pottur. Á lóðinni er jafnframt heimilt að byggja stærra sumarhús, sem gefur sjóðnum möguleika á frekari uppbyggingu síðar.
Þriðja eignin er 7.350 fermetra sumarhúsalóð við Óðinsstíg 20. Lóðin skapar einnig áhugaverða möguleika til framtíðar.
Horft til framtíðar
Auk kaupanna í landi Ásgarðs hefur verið unnið að því að tryggja Orlofssjóði VFÍ tvær nýjar sumarhúsalóðir í Hraunborgum.
Með þessum fjárfestingum er horft til þess að efla og fjölga orlofskostum á næstu árum. Ekki er þó gert ráð fyrir að ráðast í nýbyggingar á næstunni, enda þarf sjóðurinn fyrst að byggja upp fjármagn í framkvæmdasjóði til að standa undir slíkum verkefnum.
Kaupin og fyrirhuguð lóðaöflun skapa engu að síður spennandi tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar Orlofssjóðs VFÍ.
Stefnt að útleigu um áramót
Stefnt er að því að sumarhúsin tvö við Óðinsstíg verði tekin í útleigu til félagsmanna um áramótin. Áður þarf að ráðast í nokkrar lagfæringar, meðal annars að koma fyrir öryggisútgangi á svefnlofti stærra hússins, auk annarra minniháttar framkvæmda.
Nánari upplýsingar um húsin og útleigu verða birtar á vef VFÍ og sendar sjóðfélögum í tölvupósti þegar nær dregur.



-1-2000x1501.jpg&w=3840&q=80)