Verkfræðingafélag Íslands hefur skilað til ráðuneytis umsögn um áformaðar breytingar á lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Félagið tekur undir markmið breytinganna um að styrkja netöryggi en leggur sérstaka áherslu á að sérhæfð verkfræðileg og tæknileg þekking glatist ekki þegar eftirlit færist til Fjarskiptastofu.
Breytingarnar fela meðal annars í sér að eftirlit með netöryggi mikilvægra innviða, sem nú er á hendi fleiri stofnana, verði fært til Fjarskiptastofu. VFÍ tekur undir að samræmd aðferðafræði við eftirlit sé æskileg en telur mikilvægt að sértæk tækniþekking fylgi verkefnunum með skipulögðum hætti.
Félagið bendir jafnframt á að núverandi eftirlitsverkefni hafi ekki verið fjármögnuð að fullu frá setningu netöryggislaga árið 2019. Tilfærsla verkefna án nauðsynlegrar fjármögnunar leysi því ekki þann grundvallarvanda og geti staðið í vegi fyrir uppbyggingu þeirrar sérhæfðu tækniþekkingar sem þarf til eftirlitsins.
VFÍ leggur einnig áherslu á skýra verkaskiptingu og formlegt samstarf Fjarskiptastofu við þær stofnanir sem nú sinna eftirlitinu, CERT-IS og lögreglu. Þá telur félagið mikilvægt að nægur tími verði gefinn til undirbúnings og yfirfærslu þekkingar svo eftirlit veikist ekki tímabundið við breytingarnar.
Helstu áherslur VFÍ
VFÍ leggur meðal annars áherslu á að:
- Sértæk tækniþekking fylgi verkefnunum til Fjarskiptastofu.
- Nauðsynleg fjármögnun fylgi verkefnunum.
- Samstarf við viðkomandi stofnanir verði fest í skýrum verklagsreglum.
- Nægur tími verði gefinn til undirbúnings og yfirfærslu þekkingar.
Mynd: Landsnet.




