• Hljodbylgja

Ný umsögn: Reglugerð um hávaða

Breytingar á reglugerð um hávaða.

25. jún. 2025

Stjórn Verkfræðingafélags Íslands hefur skilað umsögn um breytingar á reglugerð um hávaða nr. 724/2008 sem Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið lagði fram til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. 

Í umsögn VFÍ segir meðal annars: 

Drög ráðuneytisins að nýrri reglugerð um hávaða eru mikilvæg. Þau eiga eftir að veita almenningi mun betra skjól gagnvart hávaða í umhverfinu en núgildandi reglugerð. Sérstaklega ber að þakka ný ákvæði um leyfilegan hávaða frá vindmyllum, skotsvæðum og akstursíþróttasvæðum. Réttaróvissu í þessum tilvikum hefur þar með verið eytt. 

Þá er mælt með að rekstraraðilar stórra flugvalla verði skyldaðir til að setja upp síritandi hljóðmæla til að kortleggja ástandið og einnig að þeir gefi út skýrslu árlega um hávaða frá flugi og þróun hans. Einnig verði tilgreindur leyfilegur hávaði frá höfnum í nálægri byggð og skylt verði að sprengja með litlum hleðslum í klöpp í stað fleygunar.

Umsögnin í heild sinni.

Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.

Allar umsagnir VFÍ er hægt að nálgast hér. 

Mynd: Unsplash.