Beint í efni

Ný umsögn: Starfs­um­hverfi ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tækja

Áhersla á einfalt og fyrirsjáanlegt stuðningskerfi og faglegt mat rannsóknar- og þróunarverkefna.

Jökulárlón brú fólk gengur undir

Verkfræðingafélag Íslands hefur skilað umsögn um áform um breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.

VFÍ tekur undir markmið breytinganna um að gera stuðningskerfið fyrirsjáanlegra og betur samræmt alþjóðlegum viðmiðum. Félagið leggur áherslu á að stuðningur við rannsóknir og þróun sé mikilvæg forsenda nýsköpunar í verkfræði og öðrum tæknigreinum.

Í umsögninni er meðal annars lögð áhersla á sveigjanlegt og einfalt umsóknarkerfi, verkfræðilega og tæknilega sérþekkingu við mat umsókna og að reglur taki mið af alþjóðlegu samstarfi íslenskra nýsköpunarfyrirtækja. Einnig þurfi að tryggja að sérhæfð erlend ráðgjöf geti talist styrkhæf þegar sambærileg þekking er ekki í boði hér á landi.

Helstu tillögur VFÍ

  1. Umsóknarkerfið verði nægilega sveigjanlegt þannig að þróunarverkefni sem mótast eftir upphaf rekstrarárs geti notið stuðnings.
  2. Verkfræðileg og tæknileg sérþekking verði tryggð við mat umsókna og meðferð kærumála.
  3. Reglur um eignarhald og hugverkaréttindi taki mið af alþjóðlegu samstarfi íslenskra nýsköpunarfyrirtækja.
  4. Sérhæfð ráðgjöf erlendis frá geti áfram talist styrkhæf þegar sambærileg þekking er ekki í boði hér á landi.
  5. Stuðningskerfið verði einfalt, skýrt og fyrirsjáanlegt.

Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.

Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda, einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.