Beint í efni

Nýr vefur VFÍ kominn í loftið

Markmiðið er betri upplifun og aðgengi að efni og þjónustu.

Nærmynd af pennum sem eru merktir VFÍ.

Nýr vefur Verkfræðingafélags Íslands (VFÍ) er nú kominn í loftið. Markmiðið er að bæta upplifun notenda, einfalda aðgengi að efni og þjónustu og skapa skýrari uppbyggingu til framtíðar.

Vefurinn er settur upp með nýju skipulagi sem byggir á ítarlegum greiningum á þörfum og notkun. Hugsmiðjan, líkt og áður, sá um hönnun og þróun vefsins.

Myndir á vefnum eru fengnar frá fyrirtækjum í greininni og er þeim ætlað að endurspegla fjölþætt verkefni og mikilvægt hlutverk félagsmanna í samfélaginu.

Þrátt fyrir ítarlegar prófanir má gera ráð fyrir að smáhnökrar komi í ljós. Við tökum því fagnandi öllum ábendingum og biðjum notendur að senda athugasemdir eða villutilkynningar til skrifstofunnar.

Engar breytingar hafa verið gerðar á umsóknarferli í sjóðum og er viðmót umsóknarkerfisins óbreytt. Á nýju ári verður áfram unnið með greiningar og endurbætur á vefnum.

Nýr vefur VFÍ er með endurbættu skipulagi og skýrari uppbyggingu sem miðar að bættri upplifun og betra aðgengi að efni og þjónustu.

Icelandic Journal of Engineering - Verktækni

Samhliða nýjum vef VFÍ var settur upp nýr vefur fyrir Icelandic Journal of Engineering - Verktækni. - Tímarit Verkfræðingafélags Íslands. Síðastliðin ár hefur verið unnið markvisst að því að efla útgáfu félagsins á ritrýndum greinum og tæknigreinum.

Icelandic Journal of Engineering - Verktækni