Beint í efni

Nýtt fé­laga­kerfi VFÍ

Notendavænna og skilvirkara viðmót.

Verkfræðingahús fánar og krani í baksýn.

Nýtt félagakerfi

Verkfræðingafélag Íslands hefur tekið í notkun nýtt félagakerfi sem mun bæta þjónustu við félagsmenn.

Með nýja kerfinu verða Mínar síður og Orlofsvefurinn sameinuð í eitt og sama kerfið. Nýtt viðmót verður einfaldara, notendavænna og skilvirkara í notkun og auðveldar félagsmönnum að nálgast þjónustu félagsins á einum stað.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið og þökkum félagsmönnum fyrir þolinmæðina á meðan unnið var að þessum umbótum.