Beint í efni

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Er háskólamenntun trygging fyrir húsnæðisöryggi?

Hús og peningar

Verkfræðingafélag Íslands tekur þátt í sameiginlegu átaki nokkurra stéttarfélaga háskólamenntaðra um að rannsaka stöðu félagsfólks á húsnæðismarkaði. Rannsóknin er unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og er markmið hennar að varpa skýru ljósi á þann veruleika sem sérfræðingar í ólíkum stéttum standa frammi fyrir í dag.

Í áratugi hefur háskólamenntun verið talin ein helsta leiðin til starfsöryggis og góðra lífskjara. Þrátt fyrir það bendir margt til þess að staða ungs, háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði hafi versnað á undanförnum árum. Sífellt fleiri standa frammi fyrir erfiðleikum við að eignast húsnæði eða búa við óöryggi á leigumarkaði.

Með þátttöku í rannsókninni vill Verkfræðingafélag Íslands leggja sitt af mörkum til að byggja upp traustan þekkingargrunn á stöðunni. Slík gögn eru nauðsynleg til að hægt sé að beita sér markvisst fyrir úrbótum og bættu húsnæðisöryggi félagsfólks.

Að rannsókninni standa sjö félög háskólamenntaðra sem endurspegla fjölbreyttan hóp sérfræðinga á íslenskum vinnumarkaði: Verkfræðingafélag Íslands, Stéttarfélag tölvunarfræðinga, Byggingafræðingafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélag Íslands, BHM og Læknafélag Íslands.

Niðurstöðurnar munu varpa ljósi á þær hindranir sem félagsfólk mætir, hvort sem um er að ræða fyrstu kaup, greiðslubyrði eða stöðu á leigumarkaði, og verða mikilvægt innlegg í umræðu og stefnumótun á sviði húsnæðismála.

Áskorun um þátttöku

Við hvetjum félagsmenn VFÍ sem fá boð um þátttöku til að svara könnuninni. Svörin eru lykillinn að því að draga fram raunhæfa mynd af stöðunni og styðja við markvissar aðgerðir til úrbóta.