Kjarasamningar VFÍ halda gildi sínu. Nýtt samkomulag VR og Samtaka atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti hefur þó áhrif á forsendu- og uppsagnarákvæði flestra samninga félagsins. Áhrifin eru mismunandi eftir samningsaðilum.
Þann 8. október síðastliðinn undirrituðu VR og Samtök atvinnulífsins (SA) samkomulag um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Forsendubrestur verður þegar tiltekin viðmið sem samið var um, svo sem um þróun verðbólgu, standast ekki.
Í flestum kjarasamningum VFÍ eru forsenduákvæði sem fela í sér að breytingar á kjarasamningum ASÍ við SA vegna forsendubrests leiði til samsvarandi breytinga á samningum VFÍ.
Hvað þýðir þetta fyrir félagsmenn VFÍ?
Ríki, Reykjavíkurborg og sveitarfélög
Kjarasamningar VFÍ við þessa aðila gilda að óbreyttu til 31. mars 2028. Ef samningum VR verður sagt upp fyrr á grundvelli nýja samkomulagsins verður rýmri frestur til að segja upp samningum VFÍ, í samræmi við forsenduákvæði þeirra.
OR og RARIK
Kjarasamningar VFÍ við OR og RARIK renna út á sama tíma og samningar VR. Ef VR nýtir heimild til að stytta samningstímann, þannig að samningarnir verði lausir frá 1. desember 2027, verður einnig heimilt að segja upp samningum VFÍ við OR og RARIK. Þá heimild þarf að nýta innan fimm virkra daga frá uppsögn VR.
Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV)
Kjarasamningur VFÍ við FRV gildir til 31. mars 2028. Í honum er ekki uppsagnarákvæði vegna forsendubrests og samkomulag VR og SA breytir því ekki gildistíma hans.
Hvað felst í samkomulagi VR og SA?
Samkomulagið felur í sér nýtt forsenduákvæði sem heimilar að stytta gildistíma kjarasamninga um allt að tvo mánuði ef annað hvort eftirfarandi viðmiða brestur:
- Ársverðbólga í október 2027 mælist yfir 4,3%.
- Verðbólga á sex mánaða tímabilinu frá apríl til október 2027 mælist yfir 3,8%, reiknuð á ársgrundvelli.
Við mat á því hvort verðbólguviðmiðin hafi staðist skal taka tillit til undirliggjandi þátta verðbólgunnar.
Aðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgu
Í tengslum við samkomulagið hafa stjórnvöld boðað sérstakar einskiptis vaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028 ef ársverðbólga í lok október 2027 verður yfir 3,8%. Heildarfjárhæð þeirra hækkar eftir því sem verðbólga er meiri.
Þá munu gjaldskrár ríkisins og ríkisstofnana, sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs, ekki hækka um meira en 2,5% árið 2027, að undanskildu kílómetragjaldi.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur hvatt sveitarfélög til að halda hækkunum almennra gjalda við 2,5% að hámarki. Samtök atvinnulífsins hafa jafnframt lýst því yfir að þau muni hvetja aðildarfyrirtæki sín til að halda aftur af verðhækkunum.



-1-2000x1501.jpg&w=3840&q=80)