Sumarúthlutun orlofssjóðs er lokið
Frestur til að greiða er til og með 20. apríl.

Sumarúthlutun Orlofssjóðs VFÍ er lokið. Þau sem fengu úthlutað hafa frest til og með mánudeginum 20. apríl til að ganga frá greiðslu.
Frá og með þriðjudeginum 21. apríl kl. 10:00 geta þau sem fengu synjun farið inn á orlofsvefinn og bókað það sem ekki hefur verið greitt fyrir eða gekk ekki út í fyrstu umferð.



