Syngjandi handrið í vindi - Lýðheilsuvá
"Draugaflaut" í flatjárnshandriðum.
Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur skrifar grein um syngjandi handrið í vindi sem er lýðheilsuvá og raunverulegt vandamál í nýbyggingum á Íslandi. Greinin er birt á ije.is (Icelandic Journal of Engineering), tímariti Verkfræðingafélags Íslands.
Markmið greinarinnar er að vara við og benda á mögulega lausn ef flatjárnshandrið fara að láta illa í vindi. Þegar svalir eru áveðurs er öruggari lausn að nota sívala stálteina í svalahandrið. Þeir hegða sér betur í vindi og mynda ekki þá háværu hvirfla sem lýst er í greininni.
Í grein Ólafs kemur fram að þau flatjárnshandrið sem fjallað er um eru lýðheilsuvá. „Þegar þau flauta í vindi trufla þau íbúa og svefn þeirra. Það verður því að fara varlega þegar flatjárnshandrið eru notuð og ráðast í mótvægisaðgerðir strax til þess að koma í veg fyrir „draugaflautið“. Hreinir tónar í truflandi hljóði eru sérstaklega óþægilegir. Þá liggur eigintónninn mjög hátt í tónsviðinu; þar sem eyrað er hvað næmast (sjá mynd af jafnstyrkleikakúrfum heyrnarinnar). Tónhæðin er nærri tíðni í ungbarnagráti og því sérstaklega truflandi.”
- Næsta færsla
- Fyrri færsla