Beint í efni

Tækni­mennt­un og framtíð Íslands

Grein Helga Gunnarssonar formanns VFÍ sem birtist í Morgunblaðinu.

Helgi Gunnarsson formaður VFÍ.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 19. mars 2026.

Á undanförnum misserum hefur mikið verið rætt um uppbyggingu innviða, orkuskipti, aukna áherslu á nýsköpun og tækni- og hugverkaiðnað á Íslandi. Allt eru þetta verkefni sem krefjast mikillar þekkingar og tæknilegrar færni. Í því samhengi vaknar eðlilega spurning: hverjir eiga að leiða þau verkefni?

Saga Íslands sýnir að verkfræðingar og tæknifræðingar hafa gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu landsins. Þeir hafa komið að þróun orkuvinnslu, samgangna og annarra innviða sem hafa lagt grunn að þeim góðu lífskjörum sem við búum við.

Fram undan eru verkefni sem eru ekki síður stór og krefjandi. Uppbygging innviða, orkuskipti og hröð tækniþróun gera sífellt meiri kröfur um trausta sérfræðiþekkingu. Á sama tíma sjáum við merki um skort á tæknimenntuðu fólki á vinnumarkaði og nýliðun í tæknigreinum annar ekki þeirri eftirspurn sem blasir við.

Þess vegna skiptir menntun á sviði raungreina og tækni miklu máli. Áhugi á vísindum og tækni þarf að kvikna snemma og tryggja þarf að hæfileikar fái að njóta sín í menntakerfinu. Tæknimenntun er ekki aðeins fjárfesting fyrir einstaklinginn heldur einnig fjárfesting í framtíð samfélagsins.

Það er einnig mikilvægt að virðing fyrir fagþekkingu endurspeglist í ákvörðunum þegar kemur að stórum verkefnum samfélagsins. Reynslan sýnir að þegar fagleg þekking fær að njóta sín skilar það sér í betri lausnum, meiri hagkvæmni og traustari innviðum.

Verkefnin sem fram undan eru í íslensku samfélagi kalla á öfluga fagþekkingu og sterka tæknimenntun. Þar munu verkfræðingar og tæknifræðingar áfram gegna mikilvægu hlutverki.

Um þessi málefni verður meðal annars rætt á Degi verkfræðinnar, árlegri ráðstefnu Verkfræðingafélags Íslands sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 20. mars og er opin öllum.

Ég hvet alla sem hafa áhuga á þessum málum til að kynna sér dagskrána og taka þátt í Degi verkfræðinnar.