Beint í efni

Tillögur ANE og jafn­rétt­is­stefna ESB

Minnt á mikilvægi STEM í umræðu um jafnrétti

ANE (Association of Nordic Engineers) hefur skilað inn umsögn vegna samráðs Evrópusambandsins um jafnréttisstefnu 2026–2030.

Helstu skilaboð ANE eru að STEM greinar verða að vera í lykilhlutverki í umræðu um stöðu og stefnu í jafnréttismálum. Konur eru enn í minnihluta á sviðum STEM og eru einungis um 20% vinnuafls í þessum greinum. Á sama tíma er spáð skorti upp á tvær milljónir vísinda- og verkfræðimenntaðra starfsmanna í Evrópu. 

Tillögur ANE eru í meginatriðum þessar:

  • Setja skýr markmið og mælikvarða til að auka þátttöku kvenna í STEM.
  • Tryggja ábyrgð og eftirfylgni.
  • Styðja við fræðslu frá unga aldri, tryggja leiðsögn og gera fyrirmyndir í STEM sýnilegar.

ANE vill vinna gegn ranghugmyndum sem letja stúlkur til að leggja fyrir sig vísindi og tækni. Rannsóknir sýna að staðalímyndir myndast strax á grunnskólaaldri og móta bæði starfsdrauma og námsval.

Nánari upplýsingar á vef ANE.