Beint í efni

Umbætur í verk­efna­stjórn­sýslu og op­in­ber­um fjár­fest­ing­um

Ráðstefna VFÍ um risaverkefni var upptaktur að umbótaverkefni.

Helgi Gunnarsson formaður VFÍ, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Ragnhildur Helgadóttir rektor Háskólans í Reykjavík.

Verkfræðingafélagið er aðili að samkomulagi um nýjan samráðsvettvang um verkefnastjórnsýslu og opinberar fjárfestingar. 

Helgi Gunnarsson formaður Verkfræðingafélagsins, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og Ragnhildur Helgadóttir rektor Háskólans í Reykjavík undirrituðu samkomulag um nýjan samráðsvettvang um verkefnastjórnsýslu og opinberar fjárfestingar. Tilgangurinn er að efla samstarf milli fjármálaráðuneytisins, VFÍ og HR á þessu sviði, stuðla að þróun bestu starfsvenja í stjórnsýslu, tengja saman þekkingu og draga fram bestu aðferðir.

Fimm fulltrúar skipa samráðsvettvanginn og eru þrír þeirra valdir af fjármála- og efnahagsráðherra, og einn frá HR og einn frá Verkfræðingafélaginu. Svana Helen Björnsdóttir, fyrrv. formaður VFÍ er fulltrúi félagsins. Samkomulagið gildir til ársloka 2027.

Ráðstefna VFÍ sem haldin var í febrúar sl. Risaverkefni - Stærðin skiptir máli var upphafið að þessum nýja samráðsvettvangi en þar var undirritið viljayfirlýsing um stofnun hans. Það er nú orðið að veruleika.