Beint í efni

Vefur VFÍ til­nefnd­ur til Íslensku vef­verð­laun­anna

Hlaut tilnefningu í tveimur flokkum: Efnis- og fréttaveita ársins og Fyrirtækjavefur ársins - lítil fyrirtæki.

Arnarnesvegur yfirlitsmynd af hringtorgi.

Nýr vefur Verkfræðingafélags Íslands hefur hlotið tvær tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna, sem veitt eru árlega af Samtökum vefiðnaðarins (SVEF).

Vefur VFÍ er tilnefndur í eftirfarandi flokkum:

  • Efnis- og fréttaveita ársins
  • Fyrirtækjavefur ársins – lítil fyrirtæki

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins á Íslandi þar sem viðurkenning er veitt fyrir framúrskarandi stafrænar lausnir, vefi og forrit sem hafa skarað fram úr á árinu.

Nýr vefur VFÍ var settur í loftið nýlega með það að markmiði að bæta þjónustu við félagsfólk, gera efni félagsins aðgengilegra og styrkja stafræna miðlun félagsins.

Verðlaunin verða afhent á hátíðlegri athöfn í Hörpu 26. mars nk.