Vetrarleiga Orlofssjóðs VFÍ

Frá og með þriðjudeginum 9. ágúst kl. 9:00 verður hægt að bóka orlofsvikur næsta vetur.

10. júl. 2022

Frá og með þriðjudeginum 9. ágúst kl. 9:00 - verður hægt að bóka orlofsvikur frá 1. september 2022 til 18. maí 2023 á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi

Að þessu sinni verður ekki lokað fyrstu tvær vikurnar í september en teknar verða frá vikur í hverju húsi til viðhalds og þrifa. Að gefnu tilefni viljum við biðja sjóðfélaga að ganga vel um og láta vita ef eitthvað skemmist í bústöðunum.

Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikuna: 20. til 27. október 2022 og vikuna 23. febrúar til 2. mars 2023. Páskavikunni 6. til 13. apríl 2023 verður einnig úthlutað sérstaklega.

Í vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Eins og áður að vetri eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver félagsmaður getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót.

Athugið að orlofsvikur fást ekki endurgreiddar.

Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsleigu að vetri, vikan kostar kr. 25.000.- Nema stærsta húsið í Hraunborgum kostar kr. 30.000.- 

Athugið að einungis er heimilt að vera með gæludýr í Klapparholti 8 og 10.

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.