Beint í efni

VFÍ fylgist grannt með for­send­um kjara­samn­inga

Möguleg áhrif á samninga á almennum og opinberum vinnumarkaði.

Veggur Hörpu og himinn.

Verkfræðingafélag Íslands fylgist grannt með þróun verðbólgu og þeirri vinnu sem nú fer fram við mat á forsendum kjarasamninga. Niðurstaðan kann að hafa áhrif á kjarasamninga á bæði almennum og opinberum vinnumarkaði.

Í forsenduákvæðum kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er kveðið á um að heimilt geti orðið að segja samningunum upp ef tólf mánaða verðbólga í ágúst 2026 mælist yfir 4,7%, að teknu tilliti til þróunar verðbólgu á sex mánaða tímabili, og ekki næst samstaða í launa- og forsendunefnd um viðbrögð.

Forsendur teljast hafa staðist ef verðbólga frá mars til ágúst mælist 4,4% eða minni á ársgrundvelli, þótt tólf mánaða verðbólga fari yfir 4,7%.

Nýjasta birta mæling sýnir að ársverðbólga er 5,3%. Endanleg niðurstaða um hvort verðbólguviðmið kjarasamninganna standist liggur þó ekki fyrir fyrr en mæling ágústmánaðar hefur verið birt og formlegt mat launa- og forsendunefndar liggur fyrir.

Formlegt mat launa- og forsendunefndar

Launa- og forsendunefnd, sem skipuð er fulltrúum Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, fylgist með þróun þeirra efnahagsþátta sem áhrif hafa á markmið kjarasamninganna.

Nefndin metur formlega hvort forsendur samninganna hafi staðist og hvaða viðbrögð séu möguleg ef svo er ekki. Hún getur tekið ákvörðun um aðgerðir sem fela í sér að samningarnir haldi gildi sínu. Slík ákvörðun er háð því að samstaða náist annars vegar meðal fulltrúa ASÍ og hins vegar meðal fulltrúa SA í nefndinni.

Náist ekki samstaða í nefndinni geta samningsaðilar hvor um sig sagt kjarasamningunum upp. Slík niðurstaða gæti haft víðtæk áhrif á vinnumarkaðinn og kallað á endurskoðun umsaminna launahækkana.

Samtök launafólks og stéttarfélög hafa kallað eftir aðgerðum sem stuðlað geti að lækkun verðbólgu. Hækkun olíuverðs í kjölfar stríðsátaka hefur haft áhrif á verðlagsþróun, en Seðlabanki Íslands hefur jafnframt bent á að innlend verðbólga sé enn mikil. Fleiri þættir en þróun olíuverðs hafa því áhrif á stöðuna.

VFÍ metur stöðuna þegar niðurstaða liggur fyrir

Verkfræðingafélag Íslands og félög sem eru með þjónustusamning við VFÍ, Stéttarfélag tölvunarfræðinga og Kjaradeild Byggingarfræðingafélags Íslands, munu fylgjast náið með niðurstöðu launa- og forsendunefndar og viðbrögðum samningsaðila á almennum vinnumarkaði.

Í framhaldinu verður staðan gagnvart kjarasamningum félaganna við ríkið metin með hliðsjón af ákvæðum þeirra og þróun mála á vinnumarkaði.

Það er mikilvægt fyrir launafólk og samfélagið allt að stöðugleiki náist og kaupmáttur varðveitist. Enn er von til þess að samningsaðilar og stjórnvöld finni leiðir sem stuðlað geti að því að samningar haldi gildi sínu.

Niðurstöðu launatöfluauka einnig að vænta

Jafnframt er á næstunni von á niðurstöðu útreikninga á launatöfluauka opinberra starfsmanna. Útreikningurinn byggist á samanburði launaþróunar á opinberum og almennum vinnumarkaði frá desember 2023 til desember 2025.

Komi launatöfluauki til framkvæmda tekur hann gildi 1. september 2026.