-400x533.jpg&w=3840&q=80)
Verkfræðingafélag Íslands veitti þremur meistaranemum og doktorsnema viðurkenningu á Rannsóknadegi verkfræðinnar sem nýverið fór fram í Háskóla Íslands. Björn Karlsson, sem á á sæti í Menntamálanefnd VFÍ, mat lagði mat á kynningarnar og Helgi Gunnarsson formaður VFÍ afhenti viðurkenningarnar.
Rannsóknadagurinn er mikilvægur vettvangur fyrir nemendur og starfsfólk til að kynna rannsóknir sínar og efla tengsl innan verkfræðisamfélagsins. Á deginum var kynnt fjölbreytt og öflug rannsóknarstarfsemi verkfræðideilda Háskóla Íslands.
Rúnar Unnþórsson, prófessor og deildarforseti Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar og formaður Verkfræðistofnunar HÍ, flutti erindi um starfsemi stofnunarinnar. Þar kom fram að doktorsnemum í verkfræðideildum hafi fjölgað verulega á undanförnum árum og að rannsóknarvirkni sé mikil. Hann benti jafnframt á að mikill vöxtur í doktorsnámi og rannsóknarstarfi skapaði ný tækifæri til frekari uppbyggingar rannsóknainnviða. Mikilvægt væri að halda áfram að þróa rannsóknaraðstöðu samhliða vaxandi starfsemi, en rannsóknir innan Verkfræðistofnunar HÍ væru að mestu fjármagnaðar með styrkjum úr samkeppnissjóðum þar sem stofnunin nyti ekki sérstakrar fjárveitingar á fjárhagsáætlun Háskóla Íslands.
Að erindinu loknu kynntu tíu doktorsnemar rannsóknarverkefni sín í hnitmiðuðum örkynningum sem gáfu góða innsýn í breidd og fjölbreytni rannsókna í verkfræðideildum HÍ, allt frá tækninýjungum til lausna á samfélagslegum áskorunum. Einnig fór fram veggspjaldakynning meistara- og doktorsnema, þar sem gestir gátu kynnt sér verkefnin nánar og rætt við nemendur.
Sem fyrr segir veitti Verkfræðingafélag Íslands viðurkenningar fyrir framúrskarandi kynningar. Svava Kristinsdóttir, doktorsnemi, hlaut viðurkenningu fyrir bestu örkynninguna og meistaranemarnir Hjalti Þrastarson, Sigurður Detlef Jónsson og Kalsoom Athar fengu viðurkenningar fyrir framúrskarandi veggspjaldakynningar. Með þeim á myndinni er Rúnar Unnþórsson.




-2000x1333.jpg&w=3840&q=80)