Nú geta sjóðfélagar í Orlofssjóði VFÍ sótt um orlofsdvöl í vetrarfríi grunnskólanna í október. Um er að ræða vikuna 22. – 29. október 2026.
Umsóknarform birtist á forsíðu á Félagavefnum ("Mínum síðum"). Þegar umsóknarfresti lýkur er úthlutað eftir punktastöðu og ákveðinn frestur gefinn til að ganga frá greiðslu. Eftir að greiðslufrestur er runninn út geta þau sem fengu synjun bókað það sem er laust, þá verður að ganga frá greiðslu um leið og bókað er.
Umsóknarfrestur er til og með 16. september. Punktafrádráttur er sá sami og að sumri, 36 punktar.
Vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna.
Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar.
Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).
Athugið að einungis er heimilt að vera með gæludýr í fjórum bústöðum: Í Klapparholti (Stóruborg 8 og 10), Álfasteinssundi 19 Hraunborgum og Stórarjóðri 14 í Húsafelli.
Nánari leiðbeiningar um bókanir og umsóknir. (Að sækja um úthlutun er undir lið 13).

-1-2000x1501.jpg&w=3840&q=80)

