Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 12. maí kl. 17:00. Fundarstaður er í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.
Dagana 5. - 8. maí fór fram rafræn kosning.
Kosið var um einn meðstjórnanda og einn varameðstjórnanda til aðalstjórnar VFÍ, báða til tveggja ára.
Lagabreytingar
Á aðalfundinum mun stjórn VFÍ leggja fram tillögu um stofnun Kjaradeilusjóðs VFÍ, ásamt tillögum að tilheyrandi lagabreytingu og reglugerð sjóðsins.
Endurvakinn sjóður SV
Stjórn Verkfræðingafélags Íslands leggur til að stofnaður verði Kjaradeilusjóður Verkfræðingafélags Íslands. Sjóðurinn verði aðeins ætlaður félögum í Kjaradeild VFÍ og aðeins þeir muni koma til með að greiða gjöld til sjóðsins, þegar þau verða innheimt. Stofnframlag sjóðsins kemur alfarið úr vinnudeilusjóði Stéttarfélags verkfræðinga (SV), sem var lagður niður við sameiningu Verkfræðingafélags Íslands og Stéttarfélags verkfræðinga. Sjóðnum hefur verið haldið aðskildum frá öðrum fjármunum félagsins til þessa dags. Tillaga stjórnar felur í sér að það verði ekki greidd gjöld í sjóðinn á árinu 2026 og 2027, heldur renni aðeins vaxtatekjur til sjóðsins. Ákvörðun um sjóðsgjöld er á forræði aðalfundar, sbr. 23. gr. laga VFÍ. Ákvörðun um sjóðsgjöld árið 2028 verði tekin á aðalfundi 2027.
Skjal með skýringum og tillögu stjórnar
Stjórnarkjör
Skila átti framboðum fyrir 15. febrúar. Rafræn kosning fór fram í aðdraganda aðalfundar. Á aðalfundinum verður tilkynnt hverjir munu sitja í stjórnum félagsins.



-2000x1333.jpg&w=3840&q=80)
