Sæmd heiðursmerki Verkfræðingafélagsins

Viðurkenning fyrir framlag til samfélagsins og VFÍ.

9. nóv. 2025

Verkfræðingarnir Árni Jónsson, Björn Karlsson og Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir voru nýverið sæmd heiðursmerki Verkfræðingafélags Íslands.

Heiðursmerki VFÍ má veita í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf á sviði verkfræði og tæknifræði eða vísinda, fyrir framtak til eflingar verkfræðinga- og tæknifræðingastéttinni í heild eða fyrir félagsstörf í þágu stéttarinnar.

Á myndinni eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson formaður VFÍ, Árni Jónsson, Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir, Björn Karlsson og Árni B. Björnsson framkvæmdastjóri VFÍ. 

Umsagnir sem ritaðar voru í viðurkenningarskjölin eru hér fyrir neðan.

Árni Jónsson.

Björn Karlsson.

Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir.

Alls hafa 133 einstaklingar hlotið heiðursmerki VFÍ í 105 ára sögu félagsins.