Beint í efni

Spenn­andi dagskrá á Degi verk­fræð­innar

Skráning er í fullum gangi. Tryggðu þér sæti.

Teningurinn nærmynd

Dagskrá Dags verkfræðinnar 2026 hefur verið birt

Dagur verkfræðinnar verður haldinn föstudaginn 20. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Nú hefur dagskráin verið birt og er hún fjölbreytt að vanda.

Í þremur málstofum verður fjallað um margvísleg viðfangsefni verkfræðinga og tæknifræðinga. Meðal annars verður fjallað um þróun í orkumálum, gervigreind og nýsköpun, auk þess sem kynnt verða spennandi verkefni og rannsóknir úr íslensku atvinnulífi og háskólasamfélagi.

Samtals verða haldin 18 fyrirlestrar í þremur sölum. Fyrirlesarar koma bæði úr atvinnulífi og háskólasamfélagi og gefst þátttakendum kostur á að kynna sér fjölbreytt verkefni og þróun á sviði verkfræði og tækni.

Dagurinn hefst með setningu og ávarpi, auk þess sem Teningurinn, viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd, verður afhentur.

Dagur verkfræðinnar er stærsti viðburður í starfi Verkfræðingafélags Íslands og hefur frá upphafi verið mjög vel sóttur. Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér dagskrána og skrá þátttöku.

Dagskrá dagsins má sjá á viðburðasíðu Dags verkfræðinnar.

Verið velkomin - Aðgangur er ókeypis.