Nú er hægt að sækja um sumarúthlutun hjá Orlofssjóði VFÍ. Umsóknarfrestur er til og með 31. mars nk.
Úthlutað er eftir punktaeign félagsmanna, sá sem flesta hefur punkta fær umbeðna viku. Þær vikur sem ekki ganga út eftir úthlutun verða í boði fyrir þau sem sóttu um og ekkert fengu.
Í lokin verða lausar vikur boðnar öllum sjóðfélögum, þá gildir reglan fyrstur kemur – fyrstur fær.
Sótt er um á orlofsvef VFÍ: http://www.orlof.is/vfi/ (velja:„Umsókn um úthlutun" á stikunni efst).
Leigt er frá föstudegi til föstudags.
Sumartímabilið 2026 er frá 29. maí til 28. ágúst. Sumar eignir eru ekki í boði allt tímabilið.
Fyrir síðustu vikuna í júní, allar vikur í júlí og fyrstu vikuna í ágúst eru dregnir frá 36 punktar. Fyrir aðrar vikur að sumri dragast frá 30 punktar.
Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).
Punktastaða miðast við áramót 2025-2026 og verður uppfærð hjá öllum sjóðfélögum áður en til úthlutað verður.
Gæludýr eru aðeins leyfði í Álfasteinssundi 19 Hraunborgum, Stóruborg 8 og 10 Klapparholti Borgarfirði og í Stórarjóðri 14 í Húsafelli.
Sjóðurinn býður einnig upp á Ferðaávísun, inneign sem hægt er að nota til að greiða fyrir gistingu hjá fjölmörgum samstarfsaðilum sjóðsins.
Helstu fréttir frá Orlofssjóðnum
Sumarið 2025 voru teknir í notkun tveir nýir bústaðir í Húsafelli og í mars 2026 var tekin í notkun ný íbúð á Akureyri.
Gríðarleg ásókn er í gjafabréf Icelandair sem hefur reynst sjóðnum kostnaðarsamt.


_pm-2000x1210.jpg&w=3840&q=80)

