Frá mánudeginum 15. júní kl. 10:00 verður hægt að bóka orlofsvikur frá lokum ágústmánaðar 2026 til 20. maí 2027 á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi
Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).
Eins og áður að vetri eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver sjóðfélagi getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót.
Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsviku að vetri. Verðið er óbreytt; vikan kostar kr. 25.000.- Nema stærsta húsið í Hraunborgum og nýju bústaðirnir tveir í Húsafelli kosta kr. 30.000.-
Vetrarfrí og páskar
Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikuna: 22. til 29. október 2026 og 18. til 25. febrúar 2027. Páskavikunni 25. mars til 1. apríl 2027 verður einnig úthlutað sérstaklega.
Vetrar- og páskafrísvikum er sem úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).
Að gefnu tilefni viljum við biðja sjóðfélaga að ganga vel um og láta vita ef eitthvað skemmist í bústöðunum.
Fréttir frá Orlofssjóðnum
Endurbætur í Hraunborgum
Komið er að endurbótum á gömlu bústöðunum tveimur í Hraunborgum. Álfasteinssund 17 verður ekki í útleigu haustið 2026 og Álfasteinssund 19 verður ekki í útleigu eftir áramótin. Bústaðirnir verða settir í útleigu um leið og endurbótum er lokið. Vegna þessa verður heimilt að vera með gæludýr í Álfasteinssundi 17 þegar hinn bústaðurinn er ekki í leigu.
Íbúð í Garðabæ er í dagsleigu
Íbúðin við Nónhæð í Garðabæ er í dagsleigu. Sólarhringurinn kostar kr. 5.000.- og frádráttur 1 punktur á sólarhring. Er þetta gert til að koma til móts við þá félagsmenn sem þurfa t.d. að sækja þjónustu í miðri viku til höfuðborgarsvæðisins.
Athugið að einungis er heimilt að vera með gæludýr í fjórum bústöðum í Klapparholti (Stóruborg 8 og 10), Stórarjóðri 14 í Húsafelli og Álfasteinssundi 19, Hraunborgum. (Eftir áramótin 2026/2027 verður heimilt að vera með gæludýr í Álfasteinssundi 17).
Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 12 punkta.



-2000x1333.jpg&w=3840&q=80)
