Beint í efni

Nið­ur­stöð­ur kjara­könn­unar 2026

Rafrænt viðmót auðveldar greiningu og samanburð.

Nærmynd af lúpínubreiðu fjöll í fjarska.

Niðurstöður kjarakönnunar Verkfræðingafélags Íslands liggja fyrir. Spurt var um laun í febrúar 2026. Með því að skoða laun eftir starfsaldri, lífaldri, fagsviði og starfssviði má nálgast þau markaðslaun sem við eiga fyrir hvern einstakling. Rafrænt viðmót auðveldar félagsmönnum að greina stöðu sína og gera samanburð á mismunandi hópum.

Kjarakönnun VFÍ 2026 - Verkfræðingar

Kjarakönnun VFÍ 2026 - Tæknifræðingar

Athugasemd um launaþróun hjá ríkinu. Þegar kjarakönnun VFÍ var framkvæmd í febrúar 2025 höfðu nýir kjarasamningar VFÍ við ríkið ekki enn tekið gildi. Því höfðu afturvirkar launahækkanir frá 1. apríl 2024 ekki skilað sér til félagsmanna sem starfa hjá ríkinu þegar könnunin var gerð. Jafnframt komu kjarasamningsbundnar launahækkanir til framkvæmda 1. apríl 2025, eftir að könnuninni lauk, og þær endurspeglast því heldur ekki í niðurstöðum kjarakönnunar 2025.

Talan sem birtist í töflu 5 endurspeglar því samanlagðar kjarasamningsbundnar hækkanir vegna tveggja samningstímabila, þ.e. afturvirkar hækkanir frá 2024 og hækkanir sem tóku gildi 1. apríl 2025.

Hækkunin felur því ekki í sér 12,7% launaskrið, heldur er um að ræða kjarasamningsbundnar launahækkanir sem ná yfir tvö ár.