Aðalfundur VFÍ - Lagabreytingar
Aðalfundur VFÍ verður haldinn 11. apríl.
Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl 2019 í Verkfræðingahúsi Engjateigi 9 og hefst fundurinn kl. 17.
Lagabreytingar
Á aðalfundinum verður lögð fram tillaga stjórnar að lagabreytingum. Annars vegar er um það að ræða endurskoðandi félagsins verði ráðinn af stjórn en ekki kosinn á aðalfundi og hins vegar að skoðunarmenn verði tveir en ekki einn.
Tillaga stjórnar að lagabreytingum.
Kosningar í stjórnir VFÍ
Í aðdraganda aðalfundar var kosið í stjórnir VFÍ. Rafræn kosning fór fram dagana 1. - 8. apríl. Niðurstöður kosninga verða kynntar á aðalfundinum.
Undir liðnum önnur mál verður farið yfir helstu niðurstöður könnunar sem gerð var vegna yfirvofandi kjarasamninga. Þá verða kynntar Mínar síður sem verða teknar í notkun á vef VFÍ fyrir aðalfundinn og staða vinnu vegna birtingar ritrýndra greina á vettvangi félagsins.
Dagskrá aðalfundar
- Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
- Reikningar félagsins, þ.m.t. reikninga deilda og sjóða félagsins, fyrir undanfarandi starfsár lagðir fram til samþykkis.
- Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
- Tillögur félagsstjórnar.
- Lýst kosningu stjórnar.
- Kjör endurskoðanda og skoðunarmanns.
- Lýst kosningu í stjórn Kjaradeildar félagsins.
- Lýst kosningu í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi.
- Laun formanns og stjórnarmanna.
- Laga- og reglugerðarbreytingar.
- Önnur mál.
Eins og kveðið er á um í reglugerðum kjarasjóða verða þær bornar upp til samþykktar á fundinum. Reglugerðir og starfsreglur sjóða eru á síðu hvers sjóðs fyrir sig á vefnum.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla