Aðalfundur byggingarverkfræðideildar VFÍ, BVFÍ, verður haldinn fimmtudaginn 23.maí í Verkfræðingahúsinu að Engjateig 9.
Á undan fundinum munu fulltrúar nýs Landspítala kynna fyrirhugaða byggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Kynningin hefst klukkan 16.
Árlegt golfmót verkfræðinga og tæknifræðinga verður haldið 14. ágúst í Öndverðanesi hjá golfklúbbi múrara. Mótið er fyrir félagsmenn VFÍ og TFÍ, maka þeirra og gesti. Sem fyrr verður keppt í sveitakeppi milli verkfræðinga og tæknifræðinga þar sem fimm bestu skor telja án forgjafar. Nánari upplýsingar.
Samkvæmt kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins átti að greiða orlofsuppbót 1. maí 2013 að fjárhæð kr. 21.600.- Þess ber að geta að í kjarasamningi við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) eru ekki ákvæði um orlofs- eða desemberuppbót, þó eru dæmi um að hún sé greidd. Hér eru upplýsingar um orlofs- og desemberuppbót hjá opinberum og hálf opinberum aðilum.
Unnið er að því að koma upptökum frá Samlokufundum og öðrum viðburðum á vegum VFÍ og TFÍ á netið. Gert er ráð fyrir að þetta verði komið í fastar skorður í haust, samhliða endurbótum á hljóðkerfi í fundarsal. Fyrstu upptökurnar eru nú komnar á vefinn.
Lesa meiraÍ janúar síðastliðnum var gefin út bókin Náttúruvá á Íslandi: Eldgos og jarðskjálftar. Margir helstu sérfræðingar landsins í jarðvísindum og verkfræði lögðu til efni í bókina en höfundar eru nærri 60 talsins. Bókin er hugsuð sem fræðirit fyrir almenning og uppsláttarrit fyrir vísindamenn. Félagsmönnum VFÍ og TFÍ býðst að kaupa bókina á sérstöku tilboðsverði hjá Háskólaútgáfunni, Dunhaga 18. Verð til félagsmanna er 15 þúsund krónur en almennt verð út úr búð er rétt tæpar 20 þúsund krónur. Upplýsingar um bókina.
Aðalfundir Austurlandsdeilda VFÍ og TFÍ verða haldnir fimmtudaginn 18. apríl kl. 19 í björgunarsveitarhúsinu á Reyðarfirði.
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum verður sameiginlegur fundur deildanna.
Lesa meiraDagana 29. og 30. apríl verður haldið námskeiðið: CE-merking véla - Hvað þarf að gera og hvernig? Námskeiðið er tveir hálfir dagar og haldið í samvinnu við Staðlaráð Íslands. Markmið námskeiðsins er að þáttttakendur verði færir um að greina hvort vörur falli undir vélatilskipun ESB og læri hverng á að CE-merkja slíkar vörur. Nánari upplýsingar. Námskeiðið verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Þátttökugjald er kr. 45.000.- Skráning.
Sumarbæklingur Orlofssjóðs VFÍ er hér á vefnum. Rafrænt umsóknareyðublað er einnig á vefnum og frestur til að skila inn umsóknum er til 14. apríl.
Ómar Olgeirsson, verkfræðingur og Óskar Þorsteinsson, tæknifræðingur eru fyrstu vinningshafarnir í Kjarakönnun Kjaradeildar VFÍ og Kjarafélags TFÍ. Þrír heppnir þátttakendur frá hvoru félagi verða dregnir úr hópi þeirra sem svara könnuninni og fá gjafakort að upphæð 15 þúsund krónur. Niðurstaða könnunarinnar er eitt mikilvægasta verkfærið í vinnu við að bæta kjör verkfræðinga og tæknifræðinga. Kjarakönnunin er á rafrænu formi og var send starfandi verkfræðingum og tæknifræðingum. Árni B. Björnsson, framkvæmdastjóri félaganna afhenti vinningana í fjarveru Þrúðar G. Haraldsdóttur, sviðsstjóra kjaramála.